Skilmálar og afbókunarreglur
Þessir almennu skilmálar gilda um alla gesti sem heimsækja Vök Baths (Vök Baths ehf. skráð við Urriðavatn, 701 Egilsstaðir, Ísland).
1. BÓKANIR, AFBÓKANIR OG ALMENN SKILYRÐI.
- Verð sem birtast á heimasíðu okkar eru háð breytingum. Vök Baths áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara. Verð innifela VSK og önnur þjónustugjöld.
Kaup sem gerð eru í gegnum heimasíðu okkar krefjast fullrar greiðslu við kaup með gildu greiðslukorti. - Bókunarstaðfesting með bókunarnúmeri er send á netfang þitt eftir að lokið er við að greiða fyrir bókun. Ef þú færð ekki tölvupóst með bókunarstaðfestingu þinni ráðleggjum við þér að hafa samband við Vök Baths í gegnum tölvupóst á: hello@vokbaths.is.
- Miðann er annað hvort hægt að prenta eða geyma í símanum eða öðru tæki. Vök Baths áskilur sér rétt til að biðja um gild skilríki frá miðahafa áður en farið er í böðin.
- Miðann á aðeins að nota á þeim tíma og þeirri dagsetningu sem tilgreind er á miðanum. Hann á aðeins að vera notaður af eiganda miðans og á ekki undir neinum kringumstæðum að endurselja miðann eða skipta honum. Breytingar og afbókanir á bókunum þarf að leggja fram með tölvupósti til hello@vokbaths.is. Vök Baths geta ekki ábyrgst beiðnir um breytingar fyrir fram.
- Afpöntunargjöld eru sem hér segir:
- Afpöntun gerð með meira en 72 klukkustunda fyrirvara: 100% er endurgreitt.
- Afpöntun gerð með 24-72 klukkustunda fyrirvara: 50% er endurgreitt.
- Afpöntun með minna en 24 klukkustunda fyrirvara: engin endurgreiðsla.
- Vök Baths áskilur sér rétt til að breyta eða afbóka allar bókanir í samræmi við rekstrarkröfur eða vegna utanaðkomandi aðstæðna sem krefjast þess. Viðskiptavinir eiga rétt á fullri endurgreiðslu á miðum ef um slíkt kemur upp á.
- Með því að nota þjónustu okkar samþykkir þú að allar kröfur, aðgerðir eða málsóknir sem geta risið vegna þeirra skilmála og afbókunarreglna sem hér eru, og/eða þeirrar þjónustu sem keypt er, lúti og skuli túlkuð í samræmi við íslensk lög. Báðir aðilar samþykkja að ágreiningsmál verði rekin fyrir dómstólum á Íslandi.
2. ÖRYGGISSTAÐLAR OG ÁBYRGÐ.
- Þegar komið er inn í aðstöðu okkar taka gestir fulla ábyrgð á eigin öryggi og öryggi barna í umsjá þeirra.
- Vök Baths afsalar sér ábyrgð á tapi, tjóni, slysum, veikindum eða breytingum á áætlun af völdum veðurs, verkfalla eða annarra þátta sem fyrirtækið hefur ekki stjórn á og vegna kostnaðar af einhverjum þessara ástæðna. Allt slíkt tap og útgjöld eru persónuleg ábyrgð gestsins.
- Vök Baths afsalar sér ábyrgð á verðmætum gesta sem gæti verið stolið, týnst eða skemmst í heimsókninni.
- Við ráðleggjum öllum gestum okkar að vera með gilda ferðatryggingu. Öryggi þitt er í algjörum forgangi. Til að tryggja öryggi þitt og til að gera heimsókn þína eins skemmtilega og mögulegt er biðjum við þig um að fylgjast sérstaklega með eftirfarandi:
- Ef þú þjáist af sjúkdómum ráðleggur Vök Baths þér að fá fyrir fram læknisráðgjöf og leyfi frá lækninum áður en þú ferð inn í aðstöðu okkar. Látið starfsfólk vita af öllum sjúkdómum sem gætu haft áhrif á öryggi þitt í sundlaugunum.
- Ef þú getur ekki synt er brýnt að þú upplýsir starfsfólk okkar.
- Gestir verða að þvo sér án baðfata áður en þeir fara í laugarnar.
- Köfun og snorkl eru með öllu bannað.
- Það er mælt með því að gestir taki sér reglulega hlé (5 mínútna hlé) frá laugunum og gufubaðinu.
- Drekktu nóg af vatni til að halda vökva í líkamanum.
- Vinsamlegast athugið að gólf og göngustígar geta verið hálir og/eða blautir. Gæta skal varúðar þegar gengið er á blautum svæðum og á stiga. Ekki hlaupa. Haldið í handrið þar sem það er í boði. Vinsamlegast hjálpaðu okkur að halda svæðum þurrum þar sem það á við.
- Ekkert gler er leyfilegt.
- Reykingar og notkun annarra nikotíngjafa, svo sem rafsígaretta og nikotínpúða, er með öllu óheimil í laugunum og á lóð Vök Baths. Slík notkun getur varðað sekt allt að 250.000 kr.
- Vök Baths ber ekki ábyrgð á verðmætum gesta. Gestir bera alfarið ábyrgð á eigin eigum.
- Af öryggisástæðum áskiljum við okkur rétt til að hafna/afturkalla aðgangi þeirra sem koma ölvaðir eða vilja fara inn/vera áfram í laugunum ölvaðir. Ákvörðun um hvort einstaklingur sé ölvaður byggir eingöngu á mati starfsmanna Vök Baths.
- Ganga skal á afmörkuðum göngustígum.
- Alltaf að fara eftir fyrirmælum frá starfsfólki okkar. Óviðeigandi hegðun eða reglubrot getur leitt til tafarlauss brottreksturs úr Vök Baths.
- Símanotkun er með öllu óheimil í klefum.
- Það er enginn lágmarksaldur til að fara í böðin. Öll börn upp að 16 ára aldri þurfa alltaf að vera í fylgd með, og í umsjá, fullorðins fylgdaraðila í heimsókn þeirra. Að hámarki tvö börn geta verið í fylgd með einum fylgdaraðila nema hann sé foreldri þeirra eða forráðamaður.
- Mælt er með uppblásnum kútum fyrir öll börn. Kútar eru ekki talin lífsbjargandi tæki og koma því ekki í stað eftilits fullorðinna með börnunum.
3. AÐILDARKORT
- Aðildarkort eru gefin út á kennitölu kaupanda eða þess sem keypt er fyrir. Kortið má sá einn nota sem það tilheyrir.
- Hægt er að fá aðildarkort með gildistíma í 1 mánuð, 3 mánuði eða 1 ár og miðaðst gildistími við kaupdag.
- Ekki eru takmörk á fjölda skipta sem hægt er að nýta kortið innan þess tímaramma.
- Aðgangur aðildarkorthafa er háður framboði hverju sinni. Almennt geta korthafar ekki tekið frá pláss með því að bóka sig fyrirfram. Hægt er að senda tölvupóst á hello@vokbaths.is eða hringja í síma 4709500 til þess að athuga bókunarstöðu áður en komið er.
- Undantekning frá bókunarrétti aðildakorthafa getur átt við vegna sérstakra viðburða, en þá kann bókunargjald að leggjast á.
- Vök Baths áskilur sér rétt til þess að veita öðrum gestum forgang sé bókunarstöðu þannig háttað að telja megi ljóst að fullbókað verði innan skamms.
- Aðildarkorthafar geta óskað eftir frystingu á aðildarkorti með framvísun á gildu læknisvottorði. Að lágmarki er hægt að frysta kortið í 8 vikur og að hámarki í 3 mánuði. Ef um aðildarkort fyrir 2 er að ræða tekur frystinginn til beggja aðila kortsins.
- Verði Vök Baths áskynja þess, til dæmis með eftirliti af handahófi, að aðildarkorthafi gerist sekur um að láta öðrum í té upplýsingar sem gerir þeim kleift að nýta sér aðildarkortið, til að mynda með sjálfsafgreiðslulausnum, eða eftir öðrum leiðum, áskilur Vök Baths sér rétt til þess að rifta aðildarkorti viðkomandi.
