Sjálfbærni

Sjálfbærni og virðing fyrir umhverfinu er okkur ofarlega í huga.

Unnið er eftir umhverfisstefnu og innkaupastefnu.

Samfélagsleg ábyrgð

Vök Baths leggur sig fram við að styðja við samfélagið á Austurlandi. Til að mynda notar veitingastaðurinn hráefni frá Móður jörð í Vallanesi, handverksbjórinn okkar er framleiddur af brugghúsinu Múla á Egilsstöðum, lerki í bygginguna og laugarnar er framleitt í Fljótsdal og stærsti hluti hreinlætisvara eru keyptar í heimabyggð.

Við sækjum auk þess ýmiskonar þjónustu til fyrirtækja á svæðinu, og reynum eftir fremsta megni að ráða heimafólk til starfa. Einnig styrkjum við íþróttastarf á svæðinu.

Heimsmarkmið og loftslagsmælir

Vinna er hafin við að tengja heimsmarkmið við stefnur Vök Baths ásamt því að safna gögnum til að setja í loftslagsmæli hjá Festu. Hér að neðan munum við birta okkar stöðu á eftirfarandi þáttum og setja okkur metnaðarfull markmið fyrir framtíðina.


RAFMAGN:

VATN:

AKSTUR:

FLUG:

FLUTNINGUR:

ÚRGANGUR:

BINDANDI CO2:

Verðlaun

& tilfnefningar

Vök Baths opnar í júlí 2019 eftir nokkurra ára mótunartíma og þróunarvinnu.

Vök Baths opnar

Vök Baths er meðal þriggja efstu til þess að vera tilnefnd til nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar árið 2021.

Tilnefning til nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar

Þetta árið varð Vök Baths hlutskarpast í vali Samtaka ferðaþjónustunnar á nýsköpunarfyrirtæki ársins

Vök Baths hlýtur nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar

Steinsteypuverðlaunin eru veitt fyrir mannvirki sem einkennast af frumlegri og vandaðri notkun á steinsteypu

Vök Baths hlýtur steinsteypuverðlaunin